Um staðinn

ImageVegamót Bistro & Bar er þægilegur veitingastaður sem sem býður uppá yfirvegað andrúmsloft en jafnframt fljóta og góða þjónustu. Hann er á tveimur hæðum og í sumarblíðunni er hægt að sitja úti í skjólgóðu og skemmtilegu umhverfi. Áhersla er lögð á ferskan og hollan mat á viðráðanlegu verði frá hádegi fram á kvöld, alla daga. Auk fjölbreytts matseðils er boðið uppá rétti dagsins frá kr. 1090 með súpu og meðal þeirra eru ávallt ferskir, spennandi fiskréttir.

Úrvalið er mikið af góðum bjór og daglega er flöskutilboð á kr. 450. Þegar líða tekur á kvöldið stigmagnast stemningin undir góðri tónlist og um helgar þeyta færustu plötusnúðar landsins skífum og gleðin verður taumlaus.

Vegamót eru frábærlega staðsett í hjarta borgarinnar á Vegamótastíg, gengt Máli & Menningu, með Laugaveg á aðra hönd og Skólavörðuholt á hina.

 

Opnunartími
Mán-Fim11:00 - 01:00
Föstudaga11:00 - 05:00
Laugardaga11:00 - 05:00
Sunnudaga12:00 - 01:00
ATH: föstudags og laugardagskvöld er
aldurstakmark 22 ára